Já sælt verið fólkið, þá er ég komin heim frá
Hollandi.
Það var alveg geðveikt þarna úti og ég ætla að segja
ykkur aðeins frá því hvernig var.
Við fórum í flugvélina og lentum í Amsterdam um svona
9-10 leytið á Hollenskum tíma, eða um 7-8 leytið.
Gerðum nú ekki mikið þegar við komum, vorum bara að chilla á
flugstöðinni, var eitthvað vandamál með bílaleigubílinn sem við
áttum að fá. En, fyrst við fengum engan bíl, þurfti Sóley frænka
hennar Stebbu að koma sækja okkur.
Við fórum heim til Sóleyjar, í Utrecht, og vorum þar í 2 daga,
mánudag og þriðjudag. Gerðum ekki mikið, þar sem við vorum ekki með
neinn bíl, en ég og Stebba fórum nú samt í mollið og fórum að
versla aðeins þar, og fengum okkur síðan franskar með majónesi...
BEST Í HEIMI !
Svo á þriðjudaginn fengum við bílinn og lögðum við þá af stað til
Sneek. Það var skemmtilegt ^^
Svo komum við í Sneek um svona 7 leytið, og fórum heim til Harry og
Ludu, Luda er sem sagt frænka hennar Stebbu. Á miðvikudeginum fór
ég og Stebba í bæinn að versla, versluðum mikið!
Fimmtudag, föstudag, laugardag og sunnudag fór ég, Stebba
og Dorianna, frænka hennar Stebbu, í bæinn að djamma, vorum
bliiiindfullar. Það var OZOM! Komumst inn allstaðar, gátum keypt
okkur eins mikið áfengi og við vildum.. vá, þetta var sko fáránlega
skemmtilegt !
Gerðum líka eitthvað fleira þessa daga, fórum í Leuvarden
(eða eitthvað, hef ekki hugmynd um hvernig þetta er skrifað) en þar
eru götumarkaðir, fuuullt af ozom búðum, og allskonar.
Og fórum svo líka á ströndina, fórum í sólbað og læti ^^
Svo ætluðum við að fara til Amsterdam á mánudaginn, en
það varð ekkert úr því þar sem ég og Stebba komum 2 klukkutímum of
seint heim kvöldið áður 
En, það er allt í lagi.. Við fórum á þriðjudaginn í
Amsterdam, fórum á Önnu Frank safnið, það var geðveikt. Þurftum
reyndar að bíða í röð í svona 1 og hálfan tíma eða svo. Sem gerði
það að verkum að við höfðum eiginlega ekki tíma til að gera neitt
annað.
En já, talandi um Amsterdam.. ég hélt að það væri svo
mikið reykt þar, allt angandi af hassi, en svo var ekki. Sá held ég
bara einn mann reykja hass þar. Reyndar sáum við líka einn gaur
reykja á flugvellinum, það var frekar asalegt.
En já, svo komum við heim frá Amsterdam, fórum aðeins í bæinn aftur
að versla og fórum síðan heim. Seinna um kvöldið buðum við Ludu og
Harry út að borða, á pizza stað. Vá, ertað grínast. Keypti mér eina
pizzu, fyrir eina manneskja, og þar var næstum því bara eins og 16"
pizza.
En svo eftir matinn fór ég og Stebba aftur á djammið, ég
var reyndar edrú. Drakk ekki neitt 
Veðjaði við foreldra hennar Stebbu uppá 25 evrur að ég gæti alveg
verið edrú, og ég gat það ^^
Stebba var reyndar, ekki edrú 
Síðan á miðvikudaginn fórum við í bæinn AFTUR að versla og svo um
svona 6 leytið, lögðum við aftur af stað til Utrecht, heim til
Sóleyjar.
Svo daginn eftir þurftum við að vakna um svona 8 leytið,
hafa okkur til, og fara síðan á flugvöllinn. Biðum í svona 2-3 tíma
þangað til við gætum fengið flugmiðana >.< það var ömurlegt.
Síðan flugum við bara heim, keypti fullt af nammi í fríhöfninni
heima, það var gaman ^^ Svo hitti ég náttla Rakeli beibí í
fríhöfninni, langt síðan ég hafði sé hana ;*
oog já, svona var Hollands-ferðin mikla
Set mjög bráðlega myndir inná ^^
Kannski bara á morgun ^^
Well, þá er farin. Bæbæ 
Komment væru vel þegin ! 